Skip to Content

FORA Connect 21 CGM blóðsykursmælir

Ný kynslóð samfelldrar glúkósamælingar – allt að 21 dags ending

Fylgstu með glúkósagildum í rauntíma án endurtekinna fingurstungna. FORA Connect 21 sendir sjálfvirkt mælingar í snjallsímann á 5 mínútna fresti, býður upp á sérsniðnar viðvaranir og veitir skýra yfirsýn yfir þróun glúkósa allan sólarhringinn.

Með aðeins 15 mínútna upphitunartíma, allt að 21 dags notkun og uppgefna MARD nákvæmni 8,2% færðu þægilega og skýra leið til að fylgjast með glúkósasveiflum í daglegu lífi.

Helstu kostir

  • Allt að 21 dagur á einum skynjara

  • 15 mínútna upphitunartími

  • Mælingar á 5 mínútna fresti

  • Kvörðunarlaus – engin fingurstunga þarf til kvörðunar

  • Viðvaranir við háum og lágum glúkósagildum

  • Vatnsheldur – IP58

  • Fyrir iOS og Android

  • App: Instara

Hentar fyrir

  • Einstaklinga með sykursýki af tegund 1 eða 2

  • Heilbrigðisstarfsfólk sem fylgist með glúkósagildum sjúklinga

  • Einstaklinga sem vilja fá betri innsýn í áhrif mataræðis, hreyfingar og daglegs lífs á glúkósasveiflur

Ef gildi í appinu passar ekki við líðan er ráðlagt að staðfesta með fingurblóðsmælingu.


Terms and Conditions
30-day money-back guarantee
Shipping: 2-3 Business Days

FORA Connect 21 CGM – fyrstu skrefin

FORA Connect 21 CGM er samfelldur glúkósamælir sem sýnir glúkósagildi, trend og sveiflur yfir daginn. Mælirinn er settur á húðina og sendir mælingar sjálfkrafa í appið.

Helstu upplýsingar

  • Upphitunartími: um 15 mínútur

  • Mælingar: á 5 mínútna fresti

  • Stöðugri mælingar: verða oft stöðugri eftir um 24 klst.

  • Notkunartími: allt að 21 dagur

  • Staðsetning: aftan á upphandlegg

Hvar á að setja mælinn?

FORA Connect 21 er ætlaður til notkunar aftan á upphandlegg.

Veldu stað þar sem:

  • húðin er heil, hrein og þurr

  • ekki eru ör, marblettir, roði eða erting

  • mælirinn verður ekki fyrir miklu nuddi frá fatnaði, töskuböndum eða íþróttabúnaði

  • svæðið er ekki beint á bein eða vöðvabrún

  • nægilegt mjúkt undirhúðarlag er til staðar

Gott ráð: Ekki setja krem eða olíu á svæðið áður en mælirinn er settur á. Hrein og þurr húð hjálpar líminu að festast betur.

Forðastu einnig staði sem þú liggur mikið á, þar sem þrýstingur getur haft áhrif á mælingar og valdið óþægindum.

Fyrsti dagurinn með nýjum sensor

FORA Connect 21 byrjar að sýna mælingar eftir um 15 mínútur, en eins og með aðra CGM-mæla getur sensorinn þurft tíma til að aðlagast líkamanum. Mælingar geta því verið aðeins óstöðugri fyrstu klukkustundirnar og verða oft stöðugri eftir um 24 klukkustundir.

Þetta gerist vegna þess að sensorinn þarf að jafna sig í vefnum undir húðinni og ná stöðugri snertingu við vefjavökvann. CGM mælir glúkósa í vefjavökva, en fingurblóðsmælir mælir glúkósa beint úr blóði.

Ef gildi passar ekki við líðan er ráðlagt að staðfesta með fingurblóðsmælingu.